jón alsæll- nn- Leikari vogaskóla
Þorsteinn Elvar Þórsson
|
Jón alsæll
Dæmigerður skífuþeytir í útvarpi af gamla skólanum. Rösklega búinn að slíta barnsskónum enda þótt hann gefi sig út fyrir að vera öðrum fremri við að ylja ungviðinu um hjartarætur í morgunsárið. Í persónu hans djarfar fyrir hráefnispörtum úr innvolsi kollega hans á borð við Gulla Helga, Hemma Gunn, Jón Axel, Jón Ársæl, Þorgeir Ástvalds, Loga Bergmann, Jón Ólafsson og fleiri sómamenn sem hafa haslað sér völl við stjórntæki ljósvakans. Sjálfbirgingslegur og yfirlætisfullur með djúpa og þægilega rödd, liðugt málbein og af honum fer orð fyrir kvensemi. Er sagður búa yfir hæfni til upptroðslu á flestum sviðum skemmtanaiðnaðarins og hefur m.a. látið til sín taka sem kynnir fegurðarsamkeppna, gestasöngvari á safnplötum og jafnvel uppistandari, þegar þeir skárstu eru uppteknir. (áður VINCE FONTANE) |
NN - NN
|